Hæ
Ég veit að ég hef ekki verið að tjá mig upp á síðkastið en það er bara búið að vera mikið að gera núna. Er búin að vera á fullu að vinna í verkefnum og er loksins búin með NAM áfangann, jibbí. Nú er ég að vinna í nýjum áfanga KNG sem felur í sér vettvangsnám og æfingakennslu. Ég er þegar búin að fylgjast með leiðbeinanda mínum honum Bjarna sem kennir sálfræði við MA og á ég bara eftir að fylgjast með í tvær kennslustundir, þær eru alls sex. Ég er líka búin að fá að kenna sem er æði og nú veit ég fyrir víst hvað ég vil gera yfir ævina. Ég vil kenna á framhalds eða háskólastigi. Ég er búin að kenna 3f í MA og kenna sálfræði og það þrjár kennslustundir. Ég bíst við að klára þetta í næstu og þar næstu viku sem er bara nokkuð gott því þá get ég farið að einbeita mér að verkefnunum.
Annað sem er í gangi. Við erum komin með nýjan hund sem heitir Bolton (hafið örugglega séð það á síðunni hans Sjonna). Allt gengur vel með hann og við munum svo fá annan svartan labba sem heitir Nero en hann kemur ekki til okkar fyrr en við flytjum í sveitina. Sem sagt fullt af ferfættum börnum, já þetta eru eins og börnin okkar og ég æfist í því að sýna ábyrgð þó ég viti það vel að eiga börn er allt annað dæmi en þetta er samt líkast því held ég. Ég er búin að vera að æfa á fullu en er komin með eitthvað meiðslavesen í kroppinn sem er að trufla mig við það að taka almennilega á því. Er ekki enn farin að spila leik síðan í desember því þeir falla alltaf niður og núna síðast vegna veðurs. Ég þarf að bíða þar til í mars til þess að geta spilað.
Ok í dag hitti ég Guðjón sem Sjonni vinnur hjá. Við vorum að skoða eftirhæðina á Grund til þess að meta það hvað þurfi að gera. Það er hellingur sem þarf að gera og þetta mun taka nokkrar vikur jafnvel nokkra mánuði. Ég er samt ekkert smá spennt og vitið þið hvað við Sjonni erum líklegast að fara að sofa fyrstu nóttina okkar í nótt. Jah kannski ekki í nótt því við erum í smá veseni með hundana og svoleiðis en við getum flutt í kvöld ef við viljum en alla vega á morgun. Málið er að neðri hæðin er laus og það þarf ekki að vinna í henni neitt og við ætlum að flytja það nauðsynlegasta þangað og vera þar, þar til efrihæðin er orðin klár. Ég get ekki beðið eftir því að flytja í sveitina og vil helst gera það núna strax. Alla vega ég verð flutt á Grund um helgina.
Jáh eitt enn, ég átti afmæli í gær og Sjonni átti að gera eitthvað óvænt og rómantískt og hann gaf mér rauða spariskó sem ég var búin að væla yfir ekkert smá mikið. Hann bað Sollu vinkonu að redda þessu fyrir mig og ég fékk að opna hann í gærkvöldi og það var æðislegt. Síðan var hann búinn að segja að við færum út að borða á Greifanum um kvöldið og ég bara jú fínt alltaf gott að borða þar. En ég var alltaf að nuða í honum um að gera eitthvað rómantískt og hann sagði bíddu eru skórnir ekki nógu rómantískt en nei ekki nóg fyrir mig en vitið þið hvað. Hann skipulagði óvæntan hópkvöldverð með fjölskyldunni minni og vinum mínum. Þegar ég kom á Greifann, hélt það yrðum bara við tvö þá biðu þar eftir okkur, Ragney, Margrét Arna, Gutti (sem er í heimsókn um helgina), Stefán og María (bróðir hans Sjonna og mágkona) og svo Solla og Gústi. Ég vissi svo ekkert og þetta var ekkert smá æðislegt og ég varð ekkert smá ánægð og við átum á okkur gat (sérstaklega ég þar sem ég fékk að borða líka af disknum hannar Möngu og Maríu, hehehheh). Já þetta varð æðislegur afmælisdagur.
Ekkert meira núna nema bara hafið það gott
blek